16 rása upptökutæki með ýmsum möguleikum

Flott og öflugt kerfi á góðu verði
Smelltu á myndina til að stækka hana

Við bjóðum uppá flott tæki sem tekur allt að 16 myndaeftirlitsvélar í einu.  Af hverju bjóðum við ekki upp á 4 eða 8 rása tæki líka ?  Vegna þess að það munar ekki það mikilu í innkaupum að við ákváðum að bjóða bara gott verð og hafa einungis 16 rása upptökutæki.  Þú getur þá byrjað smátt og bætt svo við ef þurfa þykir.  Það er betra að eiga þann möguleika, heldur en að festa sig í 4 véla upptökutæki og geta ekki bætt við myndavél.

Hvað býður upptökutækið uppá ?

  • Allt að 16 vélar í einu
  • Afspilun af öllum tendum vélum, spilar 4 í einu
  • Hægt að hafa nokkrar eða allar vélar á hreyfiskynjara
  • Hægt að hafa nokkrar eða allar vélar á stanslausri upptöku
  • Hægt að hafa tækið sem hálfgerða þjófavörn
  • Hægt að tengjast með skoðunar forriti gegn um VPN tengingu utanhúss
  • Hægt að setja allt að fjögur skoðunar forrit inn á tækið
  • Hægt að tengja Zoom vélar inn á kerfið
  • Hægt að blanda vélum, zoom, venjulegar, úti eða innivélar
  • Hægt að fá sendingu í flesta GSM síma frá tækinu
  • Hægt að tengja við sjónvarp

Með upptökutækinu, kemur öflugt forrit til að setja upp í tölvu þess sem á að fylgjast með upptökunni.  Með forritinu getur þú ákveðið hvaða myndavélar eru í skoðunarglugga forritsins, eða haft þær allar.  

Einnig getur þú tekið upp á tölvuna sem forritið er sett uppá og skoðað upptökuskrárnar.  

Kíktu í kaffi til okkar og sjáðu kerfið uppsett. 

 

Fyrirspurn