Er verið að taka upp ?
Því miður vitum við um mörg dæmi þess að fyrirtæki hafa keypt myndaupptökukerfi, en fylgjast svo ekkert með þeim. Þau þykja jafnvel erfið og ekki er kunnað á þau.
Með þjónustusamningi um myndaeftirlitskerfið, komum við reglulega til ykkar og förum yfir að kerfið sé að taka upp, myndavélar rétt stiltar, vefforritið virki, að stjórinn geti fylgst með vélunum frá sinni vél og fl. og fl sem fylgir myndaeftirlitskerfi.
Einnig getum við tekið afrit af kerfinu út úr húsi, hjálpað við að tengja kerfið þannig að það sendi skilaboð í GSM síma stjórnanda sé brotist inn.
Það getur marg borgað sig að vera með þjónustusamning með myndaeftirlitskerfinu. Það er fúlt að það sé stolið frá fyrirtækinu og komast að því að einhverntíma var slökkt á kerfinu, eða þegar rafmagnið fór af, stillti enginn aftur á upptöku.
Hafðu samband við okkur og fáðu nánari upplýsingar, hvort sem er í síma eða tölvupósti.

