Fastir viðveru tímar á mánuði

Það eru mörg fyrirtæki sem kjósa að fá fasta tíma á mánuði. Gilda þeir hvort sem er fyrir vinnu hjá fyrirtækinu eða í fjartengingu.
Kosturinn er sá að tæknimaður Tölvukerfa ehf, kemur til ykkar á fyrirfram ákveðnum tímum. Hægt er að vera tilbúinn með verkefnalista fyrir heimsóknina, eða að við förum yfir netþjóninn og þann búnað sem er á staðnum. Við sjáum um að láta vita ef þarf að uppfæra tölvur, við leitum tilboða og ráðleggjum.
Er þessi samningur líka sniðugur uppá að ekki er bara um netþjónarekstur um að ræða. Það má líka nota tímann í að vinna við IP símkerfið, aðstoða starfsmenn fyrirtækisins eða aðra vinnu sem tengist tölvum. Nýtist því tími tæknimannsins vel hjá ykkur. Það er öllum til hagsældar.
Fáðu nánari upplýsingar með því að hringja í okkur eða senda tölvupóst

