Tölvurekstrarsamningur

 

Við sjáum um að reka tölvukerfi fyrir fyrirtæki stór og smá.  Um ýmsar leiðir er hægt að velja.  

  • Aðeins er hringt í okkur þegar á þarf að halda
  • Við komum reglulega og fylgjumst með tölvukerfinu
  • Við sjáum um kerfið í fjartengingu

Leiðirnar fara alfarið eftir stærð viðskiptavinarins og óskum.  Við mælum með því að við komum reglulega, förum yfir netkerfið, uppfærum netþjóna og jafnvel kíkjum á útstöðvar hjá starfsfólki sé þess óskað.

Ástæðan fyrir því að við viljum helst ekki að aðeins sé hringt í okkur þegar eitthvað er að, er einfaldlega það að sú leið er dýrust fyrir viðskiptavin okkar.  Það marg borgar sig að vera með viðbúnað við tölvukerfið.  Ekki vera í sífeldum slökkvistörfum eða að tölvukerfið sé látið loga, þar til allt slokknar.  Við mælum með fyrirbyggjandi aðgerðum, sem til langtíma sparar fyrirtækinu peninga.

Með fjartengingu er hægt að fylgjast með tölvukerfi viðskiptavinar okkar.  Þar eru til tvær leiðir.  Við tengjumst kerfinu, uppfærum og skoðum kerfisskrár á netþjóni.  Eða við fáum sendan tölvupóst frá tengilið um hvaða verkefni skal vinna.

Fyrirspurn

Sölumaður mun hafa samband við þið fljótlega