Netferðalagið þitt
hefst hér.
Til að skapa vefviðveru þarf réttan vettvang. Láttu taka eftir þér með vefsmiðnum okkar þar sem þú dregur og sleppir og gerir allt sjálf(ur).
Hvort sem þú vilt kynna sjálfa(n) þig eða fyrirtækið þitt er vefsmiðurinn okkar byggður á sniðmátum og leiðsögn með leiðbeinandi efni, nógu einfaldur fyrir byrjendur og fullur af eiginleikum fyrir fagfólk. Tilfinningin er eins og í PowerPoint, en með meiri krafti, glæsileika og einfaldleika. Lausn sem þú munt njóta þess að nota.
Eiginleikar vefsmiðsins
Vefsmiðurinn okkar inniheldur allan pakkann af eiginleikum.
Ritillinn með draga og sleppa gerir viðskiptavinum kleift að bæta við og raða eiginleikum vefsíðunnar beint á síðuna, með forspárlýsingu á svæðum þar sem má setja þá.
Þú getur notað tilbúna útlitsþætti eins og texta, hnappa, myndir eða tákn til að búa til hvaða sérsniðna og fagmannlega vefsíðuuppsetningu sem er.
Þú þarft ekki að eyða tíma í að stilla upp efni. Safn með yfir 350 efniseiningum hjálpar þér að búa til faglegar vefsíður án tæknikunnáttu.
Vefsíður líta vel út í öllum tækjum. Sniðmátin aðlagast 100% öllum tækjum, þar á meðal snjallsímum, spjaldtölvum og borðtölvum.
Gerðu vefsíðuna þína áhrifameiri með úrvali yfir 200.000 faglegra úrvalsmynda í hárri upplausn. Vefsmiðurinn okkar inniheldur einnig innbyggð myndbönd og myndabestun.
Þú getur treyst því að tapa engri vinnu þökk sé rauntímavistun. Ritillinn vistar allt sjálfkrafa á meðan þú vinnur.
Netsala getur knúið reksturinn áfram. Byggðu vefsíðuna þína upp sem verslun, tískuverslun eða vefverslun.
Hvort sem þú rekur tískuverslun, búð eða fulla vefverslun eru áskriftir í boði fyrir 10, 50 og 500 vörur.
Tengstu PayPal, Square, Stripe og yfir 50 traustum greiðslukortaþjónustum til að taka strax við greiðslukortum.
Bjóddu viðskiptavinum hraðara og auðveldara greiðsluferli með valfrjálsri skráningu við greiðslu. Bjóddu örugga greiðslu á einni síðu sem inniheldur athugasemdir viðskiptavina við pöntun.
Veldu úr mörgum uppsetningum á vörusíðum og sérsníddu lýsingar og hönnun að vild. Auðveldaðu viðskiptavinum að finna vörur með því að flokka þær.
Búðu til afsláttarmiða eða kynningarkóða til að auka söluna. Auktu sölu með því að sýna venjulegt verð við hlið afsláttarverðs.
Birgðarakning hjálpar þér að vita hvenær tímabært er að fylla á vörubirgðir og hvaða afbrigði vara eru vinsælust.
Þú getur sýnt viðskiptavinum þínum rauntímaverð flutningsaðila við greiðslu með því að tengja vefverslunina þína við flutningsaðila á borð við USPS, FedEx, UPS, Australia Post, Canada Post o.fl.
Notaðu skattaútreikninga fyrir hvaða land sem er eða skilgreindu tiltekin svæði. Hafðu fulla stjórn á útreikningi skatta; stilltu skatta eftir staðsetningu, bættu við skatti fyrir hóp vara eða settu upp skattfrjálsar vörur.
Fáðu tilkynningar um pantanir strax í tölvupósti. Stjórnaðu og skoðaðu yfirlit yfir allar pantanir, leitaðu að pöntunum, síaðu þær eftir flokkum og uppfærðu pantanir og upplýsingar um viðskiptavini, og bættu við rakningarnúmeri fyrir sendingu.
Sniðmát sem flýta fyrir rekstrinum
Fáðu vefsmiðinn til að skoða öll yfir 150 sniðmátin sem gera þér kleift að byrja fljótt og auðveldlega.
Prófaðu vefsmiðinn ÓKEYPIS
Með opinni prufu getur þú prófað vefsmiðinn og byggt nýju vefsíðuna þína að fullu ÓKEYPIS, án nokkurs stofnkostnaðar.
Þú borgar ekkert fyrr en þú ert tilbúin(n) að birta!
Hvernig kemur vefsmiðurinn okkar út
í samanburði við keppinauta?
Einfaldleiki og þægileg notkun skila hærri CSS (ánægjukönnun viðskiptavina) og betri upplifun notenda.
Sparar mikinn tíma og fyrirhöfn þegar vefsíða er útbúin fyrir mismunandi farsíma.
Fyrirfram hönnuðu byggingareiningarnar hjálpa þér að búa til faglegar vefsíður án þess að eyða tíma í að stilla upp efni.
Vefsmiðurinn er ekki hugsaður fyrir atvinnuforritara. Markmið okkar er að bjóða litlum og meðalstórum fyrirtækjum vettvang sem allir geta notað til að búa til glæsilegar vefsíður sem virka í öllum tækjum, á örfáum mínútum.
Helmingi lægra verð en hjá öðrum vefsmiðum, en þú færð alla kostina og betri eiginleika.
Það skiptir öllu máli að deila sögunni þinni. Tengstu gestum þínum í gegnum samfélagsmiðla og bloggið þitt.
Deildu sögunni þinni og tengstu gestum þínum með því að bæta sérsniðnu bloggi við vefsíðuna þína. Stilltu útlit færslna á birtri vefsíðu.
Búðu til bloggfærsluna núna, vistaðu hana og birtu síðar, til dæmis í takt við tiltekna frétt eða sértilboð.
Breyttu bloggfærslu eftir að hún hefur verið birt með innbyggða ritlinum og efnisvinnslutólinu.
Hvettu gesti til að líka við og deila efninu þínu með því að bæta við táknum fyrir samfélagsmiðla á borð við Facebook, Twitter, LinkedIn og Pinterest.
Gefðu gestum kost á að skrifa athugasemdir og líka við tengdu Facebook-síðuna þína án þess að yfirgefa vefsíðuna þína.
Sýndu Instagram-myndirnar þínar sjálfkrafa á vefsíðunni í hvert sinn sem þú birtir og haltu gestum upplýstum með beinu streymi af Twitter-reikningnum þínum.