1. Farið inn á stjórnborð pósthólfa Opnið Mac Mail og farið í „Mail“ sem er í valstikunni efst á skjánum, og veljið „Preferences...“
2. Uppsetning á nýju pósthólfi Þegar komið er inn á stjórnborðssíðuna fyrir pósthólfin er smellt á plúsinn sem er staðsettur neðst í vinstra horni.
3.1 Pósturinn settur upp Nú er hægt að hefjast handa við að setja inn allar viðeigandi upplýsingar fyrir pósthólfið.
3.2 Pósturinn settur upp Á þessari síðu er sett inn:
Hvort nota eigi POP eða IMAP til að meðhöndla póst Lýsandi nafn á pósthólfinu (getur verið hvað sem er) Póstþjóninn sem tengjast á Notendanafn og lykilorð
3.3 Pósturinn settur upp Hér er hægt að velja hverskonar læsingu póstþjónninn notar. Á póstþjónum Nethysing er það Password. ATH! Ekki haka við „Use Secure Socket Layer (SSL)“
3.4 Pósturinn settur upp Hér er settur inn sá póstþjónn sem á að senda póst út í gegnum.
Setjið inn lýsandi nafn fyrir póstþjóninn (getur verið hvað sem er) Setjið inn slóð þjónsins (mail.þitt-lén.is fyrir Nethysing) Hakið við „Use Authentication“ og skrifið inn notendanafn og lykilorð í viðeigandi reiti
3.5 Pósturinn settur upp Hér er hægt að velja hverskonar læsingu póstþjónninn notar á póst sem á að senda út. Hjá Nethysing er „Password“ valið.
3.6 Pósturinn settur upp Á síðustu síðunni er hægt að fara yfir þær upplýsingar sem slegnar voru inn. Staðfestið að upplýsingarnar séu réttar og smellið svo á „Create“ til að klára uppsetningu.
4. Útþjónn rétt stilltur Nú þarf að setja inn réttar stillingar fyrir útsendingarþjón svo hægt sé að senda bréf án vandræða. Smellið á bláa reitinn við hlið gluggans sem er merktur „Outgoing Mail Server (SMTP)“ og veljið svo „Edit server list...“
4.1 Útþjónn rétt stilltur Á stillingarsíðu útþjóns skal gera eftirfarandi:
Veljið réttan þjón (mail.þitt-lén.is) Smellið á „Advanced“ við hlið „Account information“ Setjið bláa punktinn í „Use Custom Port“ og ritið inn töluna 587 Gangið úr skugga um að „Authentication“ sé „Password“ Ritið inn notendanafn og lykilorð í viðeigandi reiti.
Smellið svo á „OK“ til að klára.
Að lokum Þá ætti uppsetningu að vera lokið og hægt að senda og sækja póst.